|
Miðvikudagur, 20. apríl 2011 10:44 |
Nú er komið að því að fara að bóka merar hjá Ljósálfi í sumar. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband sem fyrst. Gerum við fyrir því að hesturinn verði í Austur-Landeyjum.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
kv Stjórnin
|
|
Sunnudagur, 13. febrúar 2011 14:33 |
|
Það má með sanni segjast að hvað sem öðru líður þá er nokkuð öruggt að það er glatt á hjalla þegar Ljósálfar hittast og ræða málin. Ljósálfur var sýndur eigendum sínum sl laugardag og var auðséð að Óli í Miðkoti er mikill fagmaður og næmur. Hesturinn er vel á veg kominn og það verður spennandi að sjá hvort hann muni ekki springa út á næstu vikum líkt og páskalijurnar og gleðja okkur enn frekar með vorinu. Ljósálfar þakka einnig hjónunum í Hjarðarúni fyrir gestristni sína og notkun á þessari glæsilegu aðstöðu. |
|
Þriðjudagur, 01. febrúar 2011 16:04 |
Með hækkandi sól og er líða fer að vori fara menn að huga að hvaða álitlegu folar eru í boði þetta sumarið, ekki síst eru Ljósálfar spenntir að fá fregnir af þeim ljósa. Tamning á folanum hefur gengið vel sem af er vetri og það má með sanni segja að fremstu tamningamenn landsins eru spenntir að vita hver hlýtur hnossið að fá að koma höfðingjanum í sitt besta form. Við almennir Ljósálfar berum fullt traust til stjórnarinnar og ekki síst formannsins að valið verði vel í þeim efnum. Eins og menn sáu glöggt á folaldasýningu félagsins þá er hann að gefa gangsöm hross með príðisgóða byggingu. því má búast við mikilli ásókn í klárinn nk sumar og eru þegar farnar að berast fyrirspurnir frá bæði félagsmönnum og utanfélagsmönnum um notkun á klárnum enda mikil eftirspurn eftir afkvæmum Ljósálfs um allan heim. Það væri vel þegið að fá myndir frá folaldasýningunni sem við gætum sett hér inn ef einhver á (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
). |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 6 |