|
Miðvikudagur, 20. apríl 2011 10:44 |
Nú er komið að því að fara að bóka merar hjá Ljósálfi í sumar. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband sem fyrst. Gerum við fyrir því að hesturinn verði í Austur-Landeyjum.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
kv Stjórnin
|
|
Sunnudagur, 13. febrúar 2011 14:33 |
|
Það má með sanni segjast að hvað sem öðru líður þá er nokkuð öruggt að það er glatt á hjalla þegar Ljósálfar hittast og ræða málin. Ljósálfur var sýndur eigendum sínum sl laugardag og var auðséð að Óli í Miðkoti er mikill fagmaður og næmur. Hesturinn er vel á veg kominn og það verður spennandi að sjá hvort hann muni ekki springa út á næstu vikum líkt og páskalijurnar og gleðja okkur enn frekar með vorinu. Ljósálfar þakka einnig hjónunum í Hjarðarúni fyrir gestristni sína og notkun á þessari glæsilegu aðstöðu. |
|
Þriðjudagur, 01. febrúar 2011 16:04 |
Með hækkandi sól og er líða fer að vori fara menn að huga að hvaða álitlegu folar eru í boði þetta sumarið, ekki síst eru Ljósálfar spenntir að fá fregnir af þeim ljósa. Tamning á folanum hefur gengið vel sem af er vetri og það má með sanni segja að fremstu tamningamenn landsins eru spenntir að vita hver hlýtur hnossið að fá að koma höfðingjanum í sitt besta form. Við almennir Ljósálfar berum fullt traust til stjórnarinnar og ekki síst formannsins að valið verði vel í þeim efnum. Eins og menn sáu glöggt á folaldasýningu félagsins þá er hann að gefa gangsöm hross með príðisgóða byggingu. því má búast við mikilli ásókn í klárinn nk sumar og eru þegar farnar að berast fyrirspurnir frá bæði félagsmönnum og utanfélagsmönnum um notkun á klárnum enda mikil eftirspurn eftir afkvæmum Ljósálfs um allan heim. Það væri vel þegið að fá myndir frá folaldasýningunni sem við gætum sett hér inn ef einhver á (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
). |
|
Fimmtudagur, 07. október 2010 22:16 |
|
Foldaldssýningin var að vonum vel heppnuð. Það var folald þeirra Margrétar Sveinbjörnsdóttur og Gylfa Albertssonar sem bar sigur úr býtum. Auglýsi hér með eftir myndum frá sýningunni. (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
)
Hér er að finna úrslitin:
|
|
Nánar...
|
|
Fimmtudagur, 07. október 2010 22:13 |
|
Tveir hafa sent inn myndir af folöldum undan Ljósálfi fæddum í sumar. Myndirnar eru frá Guðbjörgu á Skíðbakka og Arnari Kærnested. Ef fleiri hluthafar eiga myndir af sínum fölöldum, er um að gera að senda þær til mín og láta birta þær hér á síðunni.
Smellið hér til að sjá myndirnar. |
|
Miðvikudagur, 15. september 2010 09:53 |
|
Kæru hluthafar!
Nú hefur verið ákveðið að halda folaldasýningu í Hjarðartúni, þar sem folöld undan Ljósálfi verða til sýnis. Takið frá þann 2. október. Nánar auglýst síðar.
Athugið! Endilega sendið inn myndir ef þið eigið þær af folöldunum ykkar. Tekið er við myndum á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
Miðvikudagur, 23. júní 2010 02:22 |
|

Um daginn var Ljósálfi sleppt í nokkrar merar. Guðbjörg á Skíðbakka skrapp með myndavélina í hagann eftir að ró færðist yfir og tók nokkrar skemmtilegar myndir.
Smellið á myndina til að sjá albúmið. |
|
Mánudagur, 31. maí 2010 12:26 |
|
Ljósálfi verður sleppt í girðingu laugardaginn 5. júní. Hesturinn verður í sömu girðingu og í fyrra, að Litlhól í Austur Landeyjum. Vinsamlega skoðið listann um þá sem dregnir voru út sem þeir heppnu hryssueigendur sem fá að koma með hryssur sínar til hestsins nú í sumar. |
|
Þriðjudagur, 24. nóvember 2009 00:39 |
|
Hér kemur listinn yfir þá 30 heppnu aðila sem voru dregnir út fyrir sumarið 2010 hjá Ljósálfi, ásamt 10 til vara. Þetta var upplýst á aðalfundinum.
|
|
Nánar...
|
|
Mánudagur, 02. nóvember 2009 14:04 |
 Eins og áður hefur komið fram, verður aðalfundur og árshátíð Ljósálfa haldinn laugardagskvöldið 21. nóvember kl. 20:00 að Smáratúni í Fljótshlíð. Boðið er upp á gistingu á staðnum. Áhugasamir vinsamlega leitið upplýsinga um gistimöguleika og verð á vef Smáratúns, eða í síma 6949610.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 2 |