Þú ert hér:   Forsíða Almennt Vorið nálgast
Vorið nálgast
Þriðjudagur, 01. febrúar 2011 16:04
Með hækkandi sól og er líða fer að vori fara menn að huga að hvaða álitlegu folar eru í boði þetta sumarið, ekki síst eru Ljósálfar spenntir að fá fregnir af þeim ljósa.  Tamning á folanum hefur gengið vel sem af er vetri og það má með sanni segja að fremstu tamningamenn landsins eru spenntir að vita hver hlýtur hnossið að fá að koma höfðingjanum í sitt besta form.  Við almennir Ljósálfar berum fullt traust til stjórnarinnar og ekki síst formannsins að valið verði vel í þeim efnum.  Eins og menn sáu glöggt á folaldasýningu félagsins þá er hann að gefa gangsöm hross með príðisgóða byggingu.  því má búast við mikilli ásókn í klárinn nk sumar og eru þegar farnar að berast fyrirspurnir frá bæði félagsmönnum og utanfélagsmönnum um notkun á klárnum enda mikil eftirspurn eftir afkvæmum Ljósálfs um allan heim.

Það væri vel þegið að fá myndir frá folaldasýningunni sem við gætum sett hér inn ef einhver á ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).
 
Smellið til að sjá stóra mynd

        
Gallery Pizza
Búaðföng
BGK Vefsíðugerð
Hvolsdekk

Helstu fréttir

Ljósálfur sumarið 2011
Nú er komið að því að fara að bó...
Vorið nálgast
Með hækkandi sól og er líða fer að...
Ljósálfur sýndur
Það má með sanni segjast að hvað s...
Folaldasýning 2010
Kæru hluthafar! Nú hefur verið ákve...
Myndir af folöldum
Tveir hafa sent inn myndir af folöldum ...
Ljósálfi sleppt!
Ljósálfi verður sleppt í girðingu l...